Á fróni...

mánudagur, janúar 24, 2005

Krøniken på nettet...

Íhaaa hvað ég elska Danmarks Radio því þeir hafa ákveðið að setja inn á netið aðra seríu af Krónikunni. Í gær horfðum við Guðmundur á 11 þátt um lífsraunir Idu, Palle, Sös og co. Ég bara fæ gæsahúð af þessari drama og þvílík gleði varð er ég uppgötvaði að hægt væri að horfa á þættina á netinu því ég var farin að þrýsta á Guðmund að kaupa Digital Ísland bara til að geta horft á Krónikuna. Þeir sem hafa áhuga verða að vera snarir í snúningum því þættirnir liggja bara smá tíma á netinu. Nú er bara rifja upp dönskuna og horfa á þættina á netinu. Mín sunnudagskvöld eru orðin heilög.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home