Á fróni...

þriðjudagur, janúar 25, 2005

Ein í kotinu...

því bóndinn er farin til dene í vinnuferð og kemur ekki heim fyrr en seint á föstudagskvöld. Þannig ef það er e-r sem vill bjóða mér í mat eða veita mér selskap þá má sá hafa samband við mig því það er ekkert smá leiðinlegt að elda fyrir einn.
Ég hefði ekkert haft á móti því að skella mér til dene út vikuna. Hitta ÓS vinkonu og co., Hlín og co. og eiga með þeim góðar kvöldstundir. Það er nefnilega nauðsynlegt að breyta aðeins um umhverfi á þessum tíma ársins. Fara stuttar helgarferðir til útlanda, sækja um sumarbústað eða skella sér í bláalónið.

Um að gera að láta sig dreyma...

2 Comments:

  • Þú ert alltaf velkomin hingað :-)

    By Asrun, at 12:33 PM  

  • Bústaðaferðin okkar forðum daga var nú frábær, með heitum potti, gufubaði og alles. Ekki leiðinlegt það að vetri til, þurfum að endurtaka það við gott tækifæri. Tala nú ekki um bláalóns ferðina okkar stelpnanna í gæsuninni minni í desember .. þurfum nú að gera það að árlegri ferð ;)

    By elin, at 7:20 PM  

Post a Comment

<< Home